Velkomin til starfa Ingibjörg Sólrún...
13.10.2008 | 12:00
....en ég vona að greinin sé einmitt til vitnis um að þú sért búin að ná þér nægilega til að koma til starfa á ný, a.m.k. að einhverju leyti. Í fjarveru þinni hefur okkur sárvantað skynsemisraddir sem tala um jafnrétti, jafnræði og "hagfræði hinnar hagsýnu húsmóður." Það er alls ekki laust við að ég sakni máflutnings sem ég kenni við Kvennalista í seinnitíma umræðum um stjórnmál. Ekki það að ég væri alltaf sammála Kvennalistanum, en ég var yfirleitt ánægður með málflutninginn.
Vissulega er þessi kreppa alþjóðleg og við hefðum aldrei getað ráðið neinu um tilurð hennar. En hitt er jafn víst, að kreppan hefur farið miklu verr með okkur en aðrar vestrænar þjóðir. Og hvers vegna er það? Þegar ég rifja upp forsöguna standa nokkur atriði uppúr í mínu pólitíska og gloppótta minni:
- Eftir að við stofnuðum EES var umræða um að við tækjum næstu skref og sæktum um fulla aðild að ESB og tækjum upp Evru "tekin út af borðinu" og læst niður í skúffu í 10 ár.
- Við einkavinavæðingu bankanna var þess vandlega gætt að engar hömlur væru á starfsemi þeirra og eigenda þeirra. Það gekk svo langt að steinar voru lagðir í götu annarra sem vildu komast að þessu alsgnægta borði og þeir lagðir í einelti
- Frjálshyggjustefna Sjálfsæðisflokksins hefur skarað ágóða að útrásareldi fárra aðila og þeir hafa skrækt ámátlega í hvert skipti sem imprað hefur verið á regluverki og jafnræði.
- Hávaxtastefna Seðlabankans hefur átt þátt í að skapa hér verðbólgu sem hefur gert okkur mjög erfitt fyrir um hagstjórn og eðlilega dreifingu á bættum kjörum.
- Athafnir Seðlabankans síðustu 2-3 vikur hafa verið mjög umdeilanlegar og í sumum tilfellum algjörlega út í hött.
Ingibjörg Sólrún: Fyrst IMF og svo ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Ingibjörg Sólrún | Breytt 3.3.2009 kl. 22:24 | Facebook
Athugasemdir
Þú veist það að IMF mun krefjast þess að meiri ný frjálshyggji yrði innleidd á Íslandi heldur en harðasta frjálshyggjumanni á Íslandi myndi nokkurn tíman detta í hug.
landsvirkjun og OR yrðu seld úr landi til hæst bjóðanda og íbúðarlánasjóður færi sömu leið.
Fannar frá Rifi, 13.10.2008 kl. 13:44
já verð líka að minna þig á að ESB er á móti íbúðarlánasjóði og vill láta leggja hann niður í gegnum EES samninginn.
Fannar frá Rifi, 13.10.2008 kl. 13:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.